Viltu gerast áskrifandi?

25. janúar 2012 14:21

Framhaldsskólakynning í Garðaskóla

Kynningarkvöld framhalds-skólanna verður haldið miðvikudaginn 1. febrúar frá kl. 17.30-19.00 í Garðaskóla, Garðabæ. Fulltrúar frá 14 framhaldsskólum hafa boðað komu sína og munu kynna starf þeirra fyrir nemendum 10. bekkja Garðaskóla, Sjálandsskóla og Álftanesskóla. Það eru Tækniskólinn, Fjölbraut í Garðabæ, Versló, Kvennaskólinn, Flensborg, MR, Iðnskólinn í Hafnarfirði, MS, Fjölbraut í Breiðholti, Hraðbraut, MH, MK, Borgarholtsskóli og Fjölbraut í Ármúla. Einnig ætla aðstandendur Íslandsmeistaramóts iðn- og verkgreina að vera með bás. Forráðamenn eru hjartanlega velkomnir. Sú hefð hefur skapast að foreldrar nemenda koma með léttar veitingar á hlaðborð en boðið er upp á gos og kaffi.

 

meira...
 

 
24. janúar 2012 11:08

Útitími hjá 1. bekk

Nemendur í 1. bekk sem voru í útitíma í morgun þriðjudag ásamt kennara sínum henni Margréti nutu sýn vel. Það var hnoðað, rúllað, velt sér og nokkrir snjókarlar litu meira að segja dagsins ljós.

 

Með því að smella á meira koma fleiri myndir.

 

 

meira...
 

 
9. janúar 2012 15:56

Samkeppni Sorpu og Landverndar vegna almanaks Sorpu árið 2012

Nemendur í 5. Bekk Álftanesskóla tók þátt í samkeppni Sorpu og Landverndar fyrir almanak Sorpu árið 2012 s.l. haust. Nemendur hönnuðu föt og fylgihluti í myndmennt hjá Nödu þar sem notuð voru ýmis verðlaus efni. Nemendur fóru í myndatöku hjá Binna ljósmyndara og voru tvær myndir valdar til að vera á dagatalinu.

Hér má nálgast dagatalið á vef Sorpu.

 

meira...
 

 
8. janúar 2012 14:20

Spurningarkeppni unglingadeildar

Í desember síðastliðnum fór fram spurningakeppni elsta stigs Álftanesskóla. Í undanúrslitum kepptu lið 7. bekkjar og 8. bekkjar annars vegar og lið 9. og 10. bekkjar. Til úrslita kepptu síðan lið 7. og 9. bekkjar þann 19. desember. Þar vann lið 9. bekkjar nokkuð örugglega og eru skólameistarar árið 2011. Þau kepptu síðan við lið kennara og eftir mjög spennandi keppni vann lið kennara með einu stigi. Upptaka frá úrslitunum og keppninni við kennarana má sjá hér

 
4. janúar 2012 13:26

Hjálparstarf í desember

Á síðastliðnum árum hefur skapast sú hefð í skólanum að nemendur styrkja hjálparstarf. Nemendaráð Álftanesskóla tók þá ákvörðun í desember að nemendur og starfsmenn skólans muni í ár styrkja Fjölskylduhjálp Íslands eins og á síðasta ári

Framlag nemenda og starfsfólks skólans var afhent Fjölskylduhjálp Íslands fyrir jólin og söfnuðust kr. 67.827

 

meira...
 

 
16. desember 2011 16:24

Jólasveinavísur í flutningi 2. bekkjar

Fimmtudaginn 15. desember fluttu nemendur í 2. bekk jólasveinakvæði eftir Jóhannes úr Kötlum í sal skólans. Foreldrum var boðið að koma og hlusta á flutninginn. Nemendur stóðu sig með mikilli prýði og heilluðu áheyrendur upp úr skónum. 

Hér má sjá myndir frá flutningnum.

meira...
 

 
16. desember 2011 15:45

Mánudagur 19. desember á unglingastigi

Mánudaginn 19. desember er síðasti kennsludagur fyrir jól hjá 6. - 10. bekk.
Nemendur mæta í skólann skv. stundaskrá kl. 8.15.
Jólaskemmtun nemenda í 6.-7. bekk verður kl. 17-19 og fyrir 8.-10. bekkur kl. 20-22:30 sama dag.

Dagskrá mánudagsins einkennist af úrslitum í spurningakeppni elsta stigs Álftanesskóla.
Þar eigast við lið 7. bekkjar og 9. bekkjar í úrlistum.
Undankeppnirnar fóru fram á fimmtudag, þá kepptu 7. og 8. bekkur og bar lið 7. bekkja sigur úr býtum og á föstudag kepptu 9. og 10. bekkur og bar lið 9. bekkja sigur úr býtum. Keppnin verður í beinni útsendingu.


 

meira...
 

 
16. desember 2011 11:35

Jólaföndur í myndmennt

Jólaföndur í myndmennt er í anda grænfánans.

Nemendur í 5. bekk hafa verið að máluða á kaffidósir á myndinni eru nokkrar dósir sem nemendur hafa skreytt.

 
14. desember 2011 16:38

Söfnun fyrir hjálparstarf

9. desember 2011 14:40

Vinakveðjan í hús á Álftanesi

9. desember 2011 14:26

Hljómsveitarval með tónleika

8. desember 2011 15:19

Kveikt á jólatrjánum við Bessastaði

8. desember 2011 14:41

Rauður dagur föstudaginn 9. desember.

7. desember 2011 08:46

Heimsókn í Litla-kot

2. desember 2011 16:25

Vináttudagur í Álftanesskóla

2. desember 2011 16:19

Grænfánaafhending

30. nóvember 2011 10:57

Á Grænni grein

22. nóvember 2011 10:40

Öryggi í umferðinni

17. nóvember 2011 11:10

Nýreglugerð um ábyrgð og skyldur í skólasamfélaginu

16. nóvember 2011 10:59

Tímarit heimilis og skóla

9. nóvember 2011 16:58

Foreldraheimsókn í samveru hjá 3. - R

21. október 2011 12:55

Evrópsk vinnuverndarvika 2011

11. október 2011 16:14

Fjöruferð hjá 4. bekk föstudaginn 7. október 2011

7. október 2011 09:34

Gönguferð - Göngum í skólann


eldri fréttir

Á döfinni
SMÞMFFL
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930311234
567891011
Janúar 2012
Bekkjafréttir
16. 10 2007 - Bekkjarfréttir árgangur 2001
24. 10 2006 - Bekkjarfréttir árgangur 2000
22. 9 2006 - Bekkjarfréttir árg. 1997
22. 9 2006 - Bekkjarfréttir árg. 1997