Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Stóru-Upplestrarkeppninni hleypt af stokkunum

18.11.2013
Stóru-Upplestrarkeppninni hleypt af stokkunum

Í dag var Stóru-Upplestrarkeppninni hleypt af stokkunum hér hjá okkur í Álftanesskóla. Keppnin hófst með því að þrír nemendur í 8. bekk sem þátt tóku í keppninni í fyrra lásu fyrir nemendur í 7. bekk en þau koma til með að taka þátt í keppninni eins og undanfarin ár. Nú hafa nemendur tímann fram í febrúar til að undirbúa sig en þá verður undankeppni í skólanum.

Í lok mars verður síðan lokakeppni milli skólanna í Garðabæ og frá Seltjarnarnesi.

 

Til baka
English
Hafðu samband