Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Jóladagatal grunnskólanna á www.umferd.is

29.11.2013
Jóladagatal grunnskólanna, á vegum Samgöngustofu, hefur göngu sína sunnudaginn 1. desember. Í daga talinu segir frá fjölhæfum dýrum sem feta sig áfram í umferðinni. Á hverjum degi birtist ný spurning sem grunnskólabörn geta svarað þegar þau opna jóladagatalið á www.umferd.is. Með þátttöku komast nemendur í verðlaunapott en tveir heppnir þátttakendur eru dregnir út á hverjum degi og fá þeir tvo bíómiða hvor.

Allir þátttakendur geta merkt svör sín með nafni bekkjar og skóla en þannig kemst bekkurinn í sérstakan bekkjarverðlaunapott. Í janúar verður svo einn heppinn bekkur
dreginn út og hlýtur hann að launum pítsuveislu og DVD mynd.

Nemendur og bekkir eru hvattir til að taka þátt í jóladagatalinu, sem er í senn skemmtilegt og fræðandi.
Jóladagatal grunnskólanna á
www.umferd.is frá 1. til 24. desember.
Til baka
English
Hafðu samband