Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Göngum í skólann

08.10.2014

Ísland tók nú þátt í 8. skipti í verkefninu Göngum í skólann. Verkefnið var fyrst haldið hér á landi árið 2007 en það á rætur sínar að rekja allt aftur til ársins 1976 þegar Danir hleyptu af stokkunum verkefninu Öruggari leið í skólann til að stemma stigu við umferðarslysum og afleiðingum þeirra. Á alþjóðavísu er Göngum í skólann verkefnið í október og alþjóðlegi dagurinn er 8. október. Vegna birtu og veðuraðstæðna hér á landi fer verkefnið fram í septembermánuði og því lauk í dag í blíðskaparveðri á alþjóðlega Göngum í skólann deginum.

Nemendur skólans höfðu val um að ganga  eða hjóla þar sem Álftanesið er kjörið fyrir hvoru tveggja. Skólinn hefur ávallt hvatt bæði nemendur sem og fullorðna til að ganga eða hjóla í skólann en það er hluti af Grænfána- og Sjálfbærniverkefnum skólans sem stuðla að heilbrigði og velferð. 

Markmið verkefnisins er meðal annars að hvetja alla til aukinnar hreyfingar, stuðla að heilbrigðum lífsstíl, draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum, auka samfélagsvitund um hversu "gönguvænt" umhverfið er og síðast en ekki síst til að kenna reglur um öryggi á göngu og hjóli.

Hér má sjá myndir frá deginum.

 

Til baka
English
Hafðu samband