Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Lesið í Nesið útikennsludagar

28.10.2014
Lesið í Nesið útikennsludagar

Dagana 29. og 30. október verða útikennsludagarnir Lesið í Nesið. Um er að ræða skerta kennsludaga þar sem unnið verður frá kl. 9:00 til hádegis í fjölbreyttum útikennsluverkefnum.

Nemendur yngsta stigs (1.-3.bekkur) byrja á að mæta á bókasafnið báða dagana. Á miðvikudeginum munu krakkarnir fara í fjöruferð og vinna þar ýmis verkefni og á fimmtudeginum fara þeir  á hreyfistöðvar víðs vegar um skólalóðina. Nemendur á mið og elsta stigi (4.-10.bekkur) byrja dagana á að mæta í heimastofur sínar. Þar verður þeim skipt upp í hópa og fara svo ýmist í gönguferðir um Nesið eða í stöðvavinnu við skólann báða dagana.

Mjög mikilvægt er að nemendur klæði sig eftir veðri.

Til baka
English
Hafðu samband