Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Foreldrakönnun Skólapúlsins - framlengd til 8. mars

04.03.2015
Foreldrakönnun Skólapúlsins - framlengd til 8. mars

Foreldrakönnun Skólapúlsins lauk formlega þann 27. febrúar og var svarhlutfallið þá 71%. Æskilegt er að svarhlutfallið sé hærra en 80% til að niðurstöðurnar séu samanburðarhæfar við niðurstöður annarra skóla.

Í von um að við náum þessu æskilega svarhlutfalli hefur verið ákveðið að hafa könnunina opna út þessa viku eða til miðnættis þann 8. mars næstkomandi. Við viljum enn og aftur hvetja alla þá sem eiga eftir að svara foreldrakönnuninni að gera svo í þessari viku.

Jafnframt viljum við þakka þeim sem þegar hafa svarað og minna á að þessi könnun er mjög mikilvægur liður í að bæta og efla skólastarf Álftanesskóla. 

Foreldrar svara könnuninni með því að slá viðkomandi kóða inn á síðuna http://foreldrar.skolapulsinn.is

Hægt er að svara á snjallsímum, spjaldtölvum og venjulegum tölvum, það tekur um 10 mínútur að svara hálfri könnun og um 20 mínútur að svara heilli könnun.

Til baka
English
Hafðu samband