Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Námsviðtöl mánudaginn 16. mars

04.03.2015
Námsviðtöl mánudaginn 16. mars

Mánudaginn 16. mars verða námsviðtöl hjá 1.-8. bekk og 10. bekk. Námsviðtöl hjá 9. bekk verða föstudaginn 13. mars vegna árlegrar ferðar þeirra að Laugum í Sælingsdal vikuna 16. - 20. mars. 

Foreldrar bóka sjálfir tíma í gegnum Mentor og mikilvægt er að þeir sem eiga fleiri en eitt barn í skólanum bóki viðtöl strax til að þeir fái samliggjandi tíma í viðtölin. Mikilvægt er hins vegar að bóka viðtölin ekki of þétt (15 mín á milli) svo tími sé til að fara á milli stofa.

Skráning opnar föstudaginn 6. mars og síðasti dagur til að bóka sig í viðtal verður fimmtudagurinn 12. mars eftir það mun kerfið loka fyrir bókanir.

Leiðbeiningar og kennslumyndband um skráningu viðtala í Mentor má finna á heimasíðu skólans undir Foreldrar - Námsviðtöl.

Til baka
English
Hafðu samband