Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skólasetning Álftanesskóla skólaárið 2015-2016

13.08.2015
Skólasetning Álftanesskóla skólaárið 2015-2016

Skólasetning Álftanesskóla fer fram í íþróttasal Íþróttamiðstöðvar þriðjudaginn 25. ágúst 2015. 

Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum á skólasetningu. 

Nemendur skólans mæta til skólasetningar eftir árgöngum:

  • Nemendur í 7. - 10. bekk mæta kl. 09:00
  • Nemendur í 4. - 6. bekk mæta  kl. 09:45
  • Nemendur í 2. - 3. bekk mæta  kl   10:30
  • Nemendur 1. bekkjar eru með sérstöku bréfi boðaðir til viðtals hjá umsjónarkennara þriðjudaginn 25. ágúst.

Miðvikudaginn 26. ágúst hefst kennsla samkvæmt stundaskrá hjá öllum nemendum skólans.

Foreldrar barna í 1. bekk eru hvattir til að mæta með börnum sínum í upphafi fyrsta skóladags  26. ágúst. Skólasetning í 1. bekk fer fram á sal skólans kl. 8:15. 

Að lokinni skólasetningu fara nemendur og foreldrar með umsjónarkennara í heimastofu og fá afhenta stundaskrá og aðrar upplýsingar.

Skólastjóri.

Til baka
English
Hafðu samband