Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fræðslufyrirlesturinn Ást gegn hatri

23.11.2015
Fræðslufyrirlesturinn Ást gegn hatri

Foreldrafélag Álftanesskóla í samráði við Sveinbjörn skólastjóra mun bjóða nemendum í 4. - 7. bekk, ásamt foreldrum þeirra, upp á fræðslufyrirlestra um eineltismál sem kallast „Ást gegn hatri“. Þetta er fræðsluátak sem félagasamtökin Erindi standa fyrir í samstarfi við feðginin Selmu Björk Hermannsdóttur og Hermann Jónsson. Meginstef þessa fræðsluátaks er að mæta hatri með ást.

Um er að ræða jafningjafræðslu sem fer þannig fram að Selma Björk framhaldsskólanemi fer í grunnskólana og talar við nemendur um upplifun sína og reynslu af einelti. Faðir hennar Hermann hittir svo foreldra grunnskólabarna og miðlar af reynslu sinni sem foreldri barns sem lagt hefur verið í einelti.

Selma Björk mun koma í Álftanesskóla þriðjudaginn 24. nóvember og ræða við tvo hópa, annars vegar börn í 4. - 5. bekk og hins vegar börn í 6. - 7. bekk. Hermann ræðir svo við foreldra miðvikudagskvöldið 25. nóvember kl. 20:00 í sal skólans.

 

Til baka
English
Hafðu samband