Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skólasetning 2017

11.08.2017
Skólasetning 2017

Skólasetning Álftanesskóla fer fram í íþróttasal Íþróttamiðstöðvar þriðjudaginn 22. ágúst 2017. 

Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum á skólasetningu. 

 

Nemendur skólans mæta til skólasetningar eftir árgöngum:

  • Nemendur í 7. - 10. bekk mæta kl. 09:00
  • Nemendur í 4. - 6. bekk mæta  kl.  09:45
  • Nemendur í 2. - 3. bekk mæta  kl   10:30
  • Nemendur 1. bekkjar eru með sérstöku bréfi boðaðir til viðtals hjá umsjónarkennara þriðjudaginn 22. ágúst.

Miðvikudaginn 23. ágúst hefst kennsla samkvæmt stundaskrá hjá öllum nemendum skólans.

Foreldrar barna í 1. bekk eru hvattir til að mæta með börnum sínum í upphafi fyrsta skóladags  23. ágúst Skólasetning í 1. bekk fer fram á Sal skólans kl. 8:15. 

Að lokinni skólasetningu fara nemendur og foreldrar með umsjónarkennara í heimastofu og fá afhenta stundaskrá og aðrar upplýsingar.
Til baka
English
Hafðu samband