Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Jóla- og góðgerðadagurinn 2017

02.11.2017
Jóla- og góðgerðadagurinn 2017
Laugardaginn 2. desember heldur Foreldrafélag Álftanesskóla hinn árlega Jóla- og góðgerðadag í góðri samvinnu við börn og foreldra á Álftanesi. Þetta er í níunda skipti sem þessi viðburður er haldinn.

Einstaklingar og fyrirtæki hafa kost á því að leigja borð til að selja vörur og þjónustu en allur ágóði af borðaleigunni fer til góðgerðarmála.

Hvetjum við alla þá sem vilja selja vöru eða þjónustu að hafa samband í netfangið: godgerdadagur@gmail.com.

Eins og undanfarin ár verða hinir ýmsu skemmtikraftar og hæfileikafólk með skemmtileg atriði fyrir gesti.

Hér á Álftanesi býr margt hæfileikaríkt fólk á öllum aldri. Við óskum hér með eftir atriðum fyrir Jóla- og góðgerðadaginn.

Ef þú hefur áhuga, eða veist um einhvern sem gæti viljað stíga á svið með atriði þá endilega sendið okkur skilaboð á Facebook: https://www.facebook.com/ForeldrafelagAlftanesskola/ eða í netfangið: foreldrafelag@alftanesskoli.is.
 
Til baka
English
Hafðu samband