Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

10. bekkur á Skólaþing

13.12.2017
10. bekkur á Skólaþing

Á miðvikudaginn 6. desember fór 10. bekkur ásamt samfélagsfræðikennurum á Skólaþing með það markmið að efla skilning og þekkingu á stjórnskipulagi, störfum Alþingis og lýðræðislegum vinnubrögðum. 

Á skólaþingi fara nemendur í hlutverkaleik og fylgja í stórum dráttum reglum um starfshætti Alþingis. Nemendurnir fá tækifæri til að setja sig í spor þingmanna með því að leiða fyrir fram ákveðin málefni sem fyrir þá eru lögð til lykta á þingflokksfundum, nefndarfundum og þingfundum. Jafnframt hlusta þeir á og meta rök sérfræðinga sem kallaðir eru til til að veita þingmönnum ráðgjöf. Þannig er ætlunin að veita innsýn í sambandið milli atburða í samfélaginu, skoðanamyndunar, pólitískra ákvarðana og starfa Alþingis og sýna áhrif almennings, sérfræðinga, fjölmiðla og hagsmunaaðila á löggjafarstarfið. Nemendur eiga að komast að lýðræðislegri niðurstöðu með því að hlusta á og meta rök og álit annarra og skiptast á skoðunum.

Hér má sjá myndir

 

 

Til baka
English
Hafðu samband