Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Laus staða hjá Álftanesskóla

05.09.2018
Laus staða hjá Álftanesskóla

Álftanesskóli auglýsir eftir starfsmönnum í hlutastarf  á frístundaheimilið Álftamýri.

Álftanesskóli er heildstæður grunnskóli (1.-10. bekk) í Garðabæ. Í Álftanesskóla eru 420 nemendur og 80 starfsmenn sem vinna saman að því að byggja upp skólastarf sem einkennist af virðingu, ábyrgð, sjálfsaga og hafa hag nemenda að leiðarljósi. Unnið er samkvæmt vinnuaðferðum um Uppeldi til ábyrgðar - uppbygging sjálfsaga. Álftanesskóli er Grænfánaskóli. Í Álftamýri - frístundaheimili eru um 100, 6 til 9 ára börn við leik, íþróttir og fjölbreytt störf að loknum skóladegi. 

Menntun, reynsla og hæfni: 
Æskilegt er að viðkomandi sé menntaður í tómstunda-, uppeldisfræðum eða annarri sambærilegri menntun
Viðkomandi þarf að vera 18. ára eða eldri
Kostur er að viðkomandi hafi víðtæka reynslu af tómstunda-, íþrótta- og félagsstarfi með börnum
Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar 
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð 
Jákvæðni, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileikar
 
Daglegur vinnutími er frá kl. 13:00 -16:00 / 17:00. 
Umsóknarfrestur er til og með 21. september 2018.
 
Nánari upplýsingar um störfin veita Erna I. Pálsdóttir skólastjóri, erna.palsdottir@alftanesskoli.is í síma 8215009 / 5404700 eða Örn Arnarson umsjónarmaður Álftamýrar, ornar@alftanesskoli.is og í síma 8215003 /5404700. 
 
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Garðabæjar. 
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. 
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á heimasíðu Garðabæjar www.gardabaer.is. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá. 

Til baka
English
Hafðu samband