Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Grænfánatískusýningin 2018

05.12.2018
Grænfánatískusýningin 2018

Hin árlega Grænfánatískusýning var haldin síðastliðinn föstudag í íþróttamiðstöðinni en hún er árlegt verkefni sem nemendur í 5. bekk vinna að með hjálp foreldra sinna. Nemendur hönnuðu búninga en foreldrar hjálpuðu þeim við sjálfa búningagerðina. Verkefnið byggist á umhverfisvænni hugsun og því tilvalið að nota verðlaus efni þ.e. að endurnýta ónýtar/gamlar flíkur eða nota ýmislegt sem fellur til heima hjá öllum. Í gegnum tíðina hafa stelpur sem strákar sýnt allskonar búninga og fylgihluti s.s. töskur, hatta, vesti, axlabönd, skartgripi, höfuðskraut og ýmislegt annað. Markmiðið með þessu verkefni er að efla tengsl milli heimilis og skóla. Um leið að fá nemendur til að hugsa umhverfisvænt, styðja sjálfbærni sem og að efla sjálfstraust nemenda  og framkomu þeirra á skemmtilegan hátt.

Í lok tískusýningarinnar sýndu stelpur í 10.bekk flottan dans.

Grænfánatískusýningin var svo endurtekin á Jóla- og góðgerðadeginum þann 1. desember við frábærar viðtökur íbúa Álftaness og  Garðabæjar.

Hér má sjá nokkrar myndir

Til baka
English
Hafðu samband