Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Lestrarátak Ævars vísindamanns

10.01.2019
Lestrarátak Ævars vísindamannsNú er síðasta lestrarátak Ævars vísindamanns hafið. Við í Álftanesskóla höfum staðið okkur býsna vel undanfarin ár og skilað inn miklum fjölda lesinna bóka. Síðast áttum við meira að segja vinningshafa. 
Það sem er einstaklega gott og jákvætt við hvernig Ævar leggur þetta upp er að allur lestur óháður tungumáli gildir og líka hlustun. Þátttaka í átaki af þessu tagi hvetur ekki bara til aukins lestrar heldur byggir einnig upp jákvæða lestrarmenningu.

Þar sem þetta er síðasta átakið er aðeins meira í það lagt til dæmis varðandi verðlaun, Ævar útskýrir reglurnar best sjálfur í þessu stutta myndbandi sem ég set hér að neðan. Mig langar þó sérstaklega að benda á að foreldrar geta tekið þátt og hvet ykkur til að lesa fyrir börnin ykkar og/eða lesa með þeim. Eins og Ævar segir sjálfur, það er ekki nóg að við segjum krökkunum að þau þurfi að lesa meira, verum góðar fyrirmyndir.
https://www.visindamadur.com/lestraratak
 
Til baka
English
Hafðu samband