Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Stóra upplestrarkeppnin

15.03.2019
Stóra upplestrarkeppnin

Stóra upplestrarkeppnin fór fram í morgun við skemmtilega athöfn. Þátttakendur voru 14 talsins og lásu fyrst úr sögunni "Benjamín dúfa" eftir Friðrik Erlingsson og svo ljóð að eigin vali. Ungu lesendurnir stóðu sig allir með mikilli prýði og fengu afhent viðurkenningarskjal ásamt rós að upplestri loknum. 

Fulltrúar skólans árið 2019 eru þau Birta Dís Gunnarsdóttir, Viktor Nói Bergs og til vara Mohamed Amine El Massoudi Rahim. 


Lokahátíðin verður miðvikudaginn 27. mars í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli þar sem fulltrúar allra skóla keppa. 

Hér má sjá myndir frá upplestrinum.

Til baka
English
Hafðu samband