Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sumarlestur 2019

19.06.2019
Sumarlestur 2019

Sem fyrr er minnt á mikilvægi þess að lesa í sumarfríinu. Rannsóknir sýna að sumarfrí nemenda getur haft í för með sér ákveðna afturför í námi því fyrri þekking og færni gleymist sé henni ekki haldið við. Þessi afturför getur numið einum til þremur mánuðum á hverju sumri. Yngstu lesendurnir, nemendur í 1.-4. bekk, eru sérstaklega viðkvæmir fyrir sumaráhrifum en börn sem glíma við lestrarerfiðleika, búa við litla lestrarmenningu heima fyrir eða eiga annað móðurmál en íslensku, eru einnig í áhættuhópi.

Börn eru mjög dugleg að viðhalda færni sinni og taka framförum hratt. Rannsóknir sýna að til þess að koma í veg fyrir afturför nægir að lesa að jafnaði tvisvar til þrisvar í viku í um það bil 15 mínútur í senn.

Hér má finna Sumarlæsisdagatal Menntamálastofnunar

Til baka
English
Hafðu samband