Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Öskudagur

15.02.2021
ÖskudagurMiðvikudaginn 17. febrúar er öskudagur og er sveigjanlegt skólastarf hjá nemendum þann dag. 

Skóladagurinn hefst kl, 9:00 hjá 1. - 4. bekk og 8. - 9. bekk en kl, 9:30 hjá 5. - 7. bekk og lýkur eftir hádegismat. Nemendur í 10. bekk koma á mismunandi tímum í skólann en upplýsingar um þeirra viðveru fá þeir hjá umsjónarkennurum. Skólinn er opinn frá kl. 8:00 fyrir þá nemendur sem þurfa að koma fyrr, þeir mæta þá á bókasafnið. Á öskudag ætlum við að brjóta upp skólastarfið og gera okkur glaðan dag með ýmsum hætti. Gaman væri ef nemendur og starfsmenn kæmu í búningum eða furðufötum í tilefni dagsins.

Álftamýri frístundaheimili tekur við þeim börnum sem þar eru skráð eftir að skóla lýkur.  
 
Til baka
English
Hafðu samband