Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Elítan félagsmiðstöð Álftanesskóla

 

Félagsmiðstöðin Elítan er staðsett í Íþróttamiðstöðinni Álftanesi. 

 

Opnunartímí :
Mánudagar: kl.19:30 - 22:00
Miðvikudagar: kl.19:30 - 22:00
Föstudagar:  kl. 19:30 - 22:00

Elítan heldur úti starfsemi fyrir yngri bekki (5. - 7. bekk) hluta úr ári. Dagskrá er send heim með tölvupósti.

Opnunartímar í miðdeild:

Mánudagar kl.17.00-19.00

Hlutverk félagsmiðstöðvarinnar
Hlutverk félagsmiðstöðvarinnar er að styðja við börn og unglinga í gegnum fjölbreytt tómstundastarf, hópefli og hópastarf.

Meginmarkmið starfsins er að skapa tækifæri til samveru og stunda heilbrigðar tómstundir undir leiðsögn reyndra frístundaleiðbeinenda. Leiðarljós starfsins er að efla félagsfærni og sjálfsmynd barna og unglinga og stuðla þannig að jákvæðum þroska þeirra og vellíðan.

Starfið byggir á hugmyndafræði barna- og unglingalýðræðis. Lögð er áhersla á að virkja hugmyndir og áhugasvið nemenda skólans. Rödd ungmenna er leiðarljós í mótun starfseminnar, hvort sem um ræðir daglegt innra starf, skipulag viðburða eða umgjörð félagsmiðstöðvarinnar. 


Starfið
Starf vetrarins er spennandi og framundan eru opin hús með ýmsu sniði, fræðslukvöld, böll og þátttaka í Samfés viðburðum eins og Landsmóti, Stíl og Samfestingi.www.samfes.is.

Við erum með Instagramsíðu elitanfelagsmidstod sem allar upplýsingar koma inn á.
Tölvupóstur er sendur varðandi stærri viðburði.


Starfsfólk Elítunnar

Sigríður E. Ragnarsdóttir/Sigga Lísa forstöðumaður Elítunnar
Arnar Freyr Tandrason, frístundaleiðbeinandi
Arngrímur Bragi Steinarsson frístundaleiðbeinandi
Baldur Nói Ólafsson frístundaleiðbeinandi
Bjarni Dagur Karlsson frístundaleiðbeinandi
Elísa Gyrðisdóttir frístundaleiðbeinandi
Ingvar Friðriksson, frístundaleiðbeinandi
Irmawati N.R. Sigurgeirsson frístundaleiðbeinandi
Kári Þorberg Kristinsson, frístundaleiðbeinandi
Marta María Sæberg frístundaleiðbeinandi
Þórunn Birna Úlfarsdóttir frístundaleiðbeinandi

Símanúmer Elítunnar er: 540-4790 og farsími forstöðumanns: 821-5017
Netfang Elítunnar er: elitan (hjá) alftanesskoli.is

English
Hafðu samband