Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Álftanesskóli er þátttakandi í evrópsku skólasamstarfi úr menntahluta Erasmus+ árið 2020-2023. 

Verkefnið ber heitið: “Opening the door to outdoor”  og er unnið með skólum í Leipzig-Þýskalandi, Vianen-Hollandi, Derry-N-Írlandi, Rovinj-Króatíu og Sitia-Krít (Grikklandi). 

Eins og nafnið gefur til kynna er verkefnið aðallega um útikennslu og markmið þess er að nemendur upplifi jákvæð áhrif útináms sem stuðlar að hæfni þeirra til að uppgötva sínar eigin leiðir til náms. Við vonumst einnig til að nemendur læri að þróa eigin námsaðferðir sem mun hjálpa þeim að ná betri árangri í þekkingarleit bæði í námi og starfi.

Verkefnið hófst í september 2020 og átti að ljúka í lok desember 2022 en vegna ástandsins í heiminum fékk það framlengingu til lok desember 2023.

Verkefnastjóri fyrir Álftanesskóla er Anna Svanhildur Daníelsdóttir.

Hér má lesa nánar um Erasmus+

Heimasíða verkefnisins

English
Hafðu samband