Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Ágætu foreldrar og forráðamenn.

Stjórn Foreldrafélags Álftanesskóla vekur athygli á félagsgjöldum Foreldrafélagsins. Hér er um að ræða valkvæða greiðsluseðla sem birtast í heimabanka. Upphæðin er 2.000,- kr. á fjölskyldu óháð fjölda barna í Álftanesskóla. Þetta gjald gerir félaginu kleift að fjármagna fræðslufyrirlestra fyrir nemendur og foreldra og aðrar uppákomur sem félagið stendur fyrir á skólaárinu, nemendum og öðrum til ánægju og fræðslu.

Allir foreldrar og forráðamenn sem eiga börn í skólanum eru sjálfkrafa félagsmenn í Foreldrafélagi Álftanesskóla.

Með fyrirfram þökk og góðum kveðjum,
Stjórn Foreldrafélags Álftanesskóla

 

 

English
Hafðu samband