Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vinna við skólastefnu Garðabæjar

16.01.2014
Vinna við skólastefnu GarðabæjarVinna við endurskoðun skólastefnu Garðabæjar stendur nú yfir en tilgangur hennar er að stuðla að markvissu skólastarfi í Garðabæ. Einn liður í þeirri vinnu er meðal annars að kalla eftir sjónarmiðum nemenda. Það var gert með því að leggja fyrir nemendur nokkrar spurningar er líta að skólastarfinu. Nemendur í 5. bekk unnu þær þannig að þau skiptu sér í fjóra hópa og hver hópur kom með svör við hverjum spurningum sem kennarinn síðan tók saman og skilaði niðurstöðum til skólastjóra.

Hér má sjá nokkrar myndir frá vinnunni.

Til baka
English
Hafðu samband