Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Kennarastöður við Álftanesskóla

27.04.2016
Kennarastöður við Álftanesskóla

Óskum að ráða grunnskólakennara skólaárið 2016-2017 í 75% starf til að kenna tónmennt og/eða dans.

Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla í tónmennt eða dansi í 1.-7. bekk og valhópum í 8.-10. bekk
Að taka þátt í þróun skólastarfsins með samstarfsmönnum
Að standa vörð um nám og velferð nemenda
Að vera í samstarfi við foreldra nemenda

Að hafa umsjón með kennslurými í tónmennt

Hæfniskröfur
Grunnskólakennari með leyfisbréf til kennslu í grunnskóla og með reynsla af kennslu í tónmennt og eða dansi. Góð samskipta- og skipulagsfærni og áhugi á nýbreytni- og þróunarstarfi.

Frekari upplýsingar um starfið:

Álftanesskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Í skólanum eru 450 nemendur. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf, vellíðan nemenda og umhverfisvernd undir fjöðrum skólans sem eru: Vinátta – Vísindi - Listir og – allir eru einstakir. Álftanesskóli er Grænfánaskóli og starfar eftir hugmyndafræði og vinnuaðferðum Uppeldis til ábyrgðar- uppbygging sjálfsaga.Unnið er að þróun lestrarstefnu skólans og einnig er unnið að þróun fjölbreyttra kennsluhátta t.d. eftir vinnuaðferðum um ,,Vörður og vegvísa“ í öllum árgöngum skólans.

Umsóknarfrestur er til 12. maí 2016

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sveinbjörn Markús Njálsson skólastjóri í síma 8215-007 og einnig má senda fyrirspurnir á netfangið markus@alftanesskoli.is og Erna I. Pálsdóttir aðstoðarskólastjóri í símum 540470, 8215-009 og á netfang: erna.palsdottir@alftanesskoli.is

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á heimasíðu Garðabæjar Minn Garðabær með því að fylla út almenna atvinnuumsókn. 

 

Óskum að ráða grunnskólakennara til að kenna heimilisfræði, 50-75% starf skólaárið 2016-2017.

Helstu verkefni og ábyrgð
Að skipuleggja og kenna heimilisfræði í 1.-7. bekk  og valhópum í 8.-10. bekk
Að skipuleggja innkaup og umsjón með gögnum og gæðum í heimilisfræðistofu

Að standa vörð um nám og velferð nemenda
Að vera í samstarfi við foreldra nemenda
Að taka þátt í þróun skólastarfsins með samstarfsmönnum

Hæfniskröfur
Grunnskólakennari með leyfisbréf til kennslu í grunnskóla
Góð samskipta- og skipulagsfærni
Áhugi á samvinnu og teymiskennslu
Faglegur metnaður

Frekari upplýsingar um starfið:
Álftanesskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Í skólanum eru 450 nemendur. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf, vellíðan nemenda og umhverfisvernd undir fjöðrum skólans sem eru: Vinátta – Vísindi - Listir og – allir eru einstakir. Álftanesskóli er Grænfánaskóli og starfar eftir hugmyndafræði og vinnuaðferðum Uppeldis til ábyrgðar- uppbygging sjálfsaga.Unnið er að þróun lestrarstefnu skólans og einnig er unnið að þróun fjölbreyttra kennsluhátta t.d. eftir vinnuaðferðum um ,,Vörður og vegvísa“ í öllum árgöngum skólans.

Umsóknarfrestur er til 12. maí 2016

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sveinbjörn Markús Njálsson skólastjóri í síma 8215-007 og einnig má senda fyrirspurnir á netfangið markus@alftanesskoli.is og Erna I. Pálsdóttir aðstoðarskólastjóri í símum 540470, 8215-009 og á netfang: erna.palsdottir@alftanesskoli.is

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á heimasíðu Garðabæjar Minn Garðabær með því að fylla út almenna atvinnuumsókn. 

Til baka
English
Hafðu samband