Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Foreldrakönnun Skólapúlsins

15.02.2019
Foreldrakönnun Skólapúlsins

Foreldrakönnun Skólapúlsins hefur nú verið send á þá 120 foreldra sem lentu í úrtaki að þessu sinni. Skólinn notar kannanakerfi Skólapúlsins til að fylgjast með og bæta innra starf skólans. Liður í því er að spyrja foreldra í skólanum um gæði skólans, samskipti við skólann, virkni í skólastarfi og námið heima fyrir. Niðurstöður á yngsta, mið- og elsta stigi eru birtar með samanburði við landsmeðaltal í mars svo lengi sem 80% svarhlutfalli hafi verið náð.

Við viljum því hvetja foreldra til að svara könnuninni svo að skólinn geti nýtt úrvinnslu og niðurstöður Skólapúlsins til að bæta skólastarfið. Könnunin er opin til 4. mars. 

Til baka
English
Hafðu samband