Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Öskudagur og öskudagsskemmtun

28.02.2019
Öskudagur og öskudagsskemmtun

Miðvikudaginn 6. mars er öskudagur og er skert viðvera nemanda þennan dag í skólanum samkvæmt skóladagatali Garðabæjar. 

Skóladagurinn hefst kl. 9:00 og lýkur eftir hádegismat. Skólinn er opinn eins og venjulega frá kl. 7:45 fyrir þá nemendur sem þurfa að koma fyrr. Gaman væri ef nemendurog starfsmenn kæmu í búningum eða furðufötum í tilefni dagsins.

Álftamýri tómstundaheimili tekur við þeim börnum sem eru skráð eftir að skóla lýkur.  


Öskudagsskemmtun á vegum Foreldrafélagsins, foreldra og nemenda í 10. bekk með aðstoð starfsmanna Elítunnar verður að venju í íþróttamiðstöðinni milli kl. 16:00 og 18:00. Allir velkomnir! 

Til baka
English
Hafðu samband