Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Starfsdagur mánudaginn 16. mars - Tilkynning frá sveitafélögum á höfuðborgarsvæðinu

13.03.2020
Starfsdagur mánudaginn 16. mars  - Tilkynning frá sveitafélögum á höfuðborgarsvæðinu

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum í dag, föstudaginn 13. mars, hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem felur m.a. í sér að skólahald verður takmarkað tímabundið. Nánari útfærslur verða unnar samkvæmt tilmælum stjórnvalda.


Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu vinna nú að skipulagningu skólastarfs m.v. ofangreindar ákvarðanir. Þegar hefur verið ákveðið að mánudaginn 16. mars verði starfsdagur í grunn- og leikskólum á höfuðborgarsvæðinu til þess að stjórnendur og starfsmenn grunn- og leikskóla geti skipulagt skólastarfið sem best á þessu tímabili sem takmörkunin nær til.

Foreldrar leik- og grunnskólabarna eru beðnir um fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu um helgina og á mánudaginn m.a. á heimasíðum sveitarfélaganna og heimasíðum grunn- og leikskóla. Þá eru í undirbúningi sameiginlegar leiðbeiningar sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um frístundaheimili, íþróttastarf, íþróttamannvirki, skólahljómsveitir, og aðrar tómstundir barna.

Virðingarfyllst,
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Til baka
English
Hafðu samband