Skólablak hjá 6. bekk
04.11.2021
Álftanesskóli tók þátt í skemmtilegu verkefni á vegum Blaksambands Íslands sem heitir Skólablak en þar er blakíþróttin kynnt á skemmtilegan hátt. Miðvikudaginn 20. október fóru íþróttakennara ásamt 23 vöskum nemendum úr 6. bekk og tóku þátt í gleðinni. Krakkarnir skemmtu sér rosalega vel, hittu og spiluðu við fullt af nemendum frá öðrum skólum. Þau stóðu sig með prýði bæði innan vallar sem utan.
Frábær morgun í Kórnum með þessum duglegu krökkum.
Hér má sjá nokkrar myndir.